Kynbótaknapi ársins

  • 30. október 2021
  • Fréttir
Árni Björn Pálsson

Kynbótaknapi ársins 2021 er Árni Björn Pálsson en valið var kynngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er á Hotel Natura. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Árni Björn Pálsson sýndi 78 hross í fullnaðardómi í 81 sýningu. Aldursleiðrétt aðaleinkunn þeirra er 8,19 og átti hann margar eftirminnilegar sýningar. Hann sýndi m.a. hæst dæmda 5.vetra hest ársins, Magna frá Stuðlum, hæst dæmdu 5.vetra hryssu ársins, Valdísi frá Auðsholtshjáleigu, hæst dæmda 6.vetra hest ársins, Seðil frá Árbæ og hæst dæmdu hryssu ársins í elsta aldursflokki, Kötlu frá Hemlu II auk fjölda annarra gæðinga. Árni er prúðmenni sem ber virðingu fyrir störfum annarra og kemur fram af háttvísi og heiðarleika, hann er kynbótaknapi ársins.“

Eiðfaxi óskar Árna Birni innilega til hamingju með árangur ársins!

 

 

Aðrir tilnefndir voru:

  • Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
  • Jakob Svavar Sigurðsson
  • Viðar Ingólfsson
  • Þórarinn Eymundsson

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link