Kynbótakvöld Sörla 5. Febrúar
„Landsmótssigurvegarinn Einar Öder Magnússon hrossaræktandi og reiðkennari, verður með fyrirlestur á Sörlastöðum þriðjudaginn 5. febrúar næstkomandi sem hefst kl. 20:00. Einar ætlar að segja okkur frá hrossarækt þeirra Halakotshjóna.
Einar Öder þarf vart að kynna, þó vita ekki allir að hross frá Halakoti og hross úr ræktun þeirra hjóna hafa staðið framarlega í keppnum undanfarin ár. Má þar m.a. nefna Glóðafeyki , Glódísi og Sálm sem öll voru í A úrslitum í síðasta LM. Erla frá Halakoti var hæðst dæmda 4 vetra hryssan á árinu 2012.
Einar þekkir líka vel ræktunina sem stendur að baki gæðingnum Spuna frá Vesturkoti.
Allir velkomnir
Aðgangur ókeypis
Boðið er upp á léttar veitingar,“segir í tilkynningu frá kynbótanefnd Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH