Kynbótasýning á Dalvík
Kynbótasýning verður haldin á Dalvík dagana 4.- 8. júní nk. (fjöldi daga tekur þó mið af skráningum).
Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið [email protected] Byrjað er að taka við skráningum en síðasti skráningar- og greiðsludagur er miðvikudagurinn 30. maí. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.18.500.- fyrir fulldæmt hross en kr. 13.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið [email protected] skýring: nafn á hrossi og fæðinganúmer. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.
Þetta kemur fram í tilkyninngu frá Búgarði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH