Kynbótasýning á Melgerðismelum
Kynbótasýning verður haldin á Melgerðismelum dagana 18. og 19. ágúst nk. að er fram kemur í tilkynningu frá Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og Þingeyinga.
„Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið [email protected] dagana 8. – 10. ágúst. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.15.000.- fyrir fulldæmt hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Skráningargjöld skulu lögð inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729 í síðasta lagi 10. ágúst og senda skal kvittun á netfangið [email protected] skýring: nafn á hrossi og fæðinganúmer. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH