Kynbótasýning í Þýskalandi – Glotti hlaut 8,62 í aðaleinkunn
Kynbótasýning fór fram í Osterbyholz í Þýskalandi á dögunum, og voru þá 151 hross sýnd til dóms. Henning Darth hjá Isibless var á svæðinu og tók nokkur myndskeið af hrossum sem þar voru sýnd.
Hæstu aðaleinkunn, 8,65, hlaut Pá frá Eyfjörd. Hann hlaut 8,82 fyrir hæfileika og 8,41 fyrir sköpulag.
Hæfileikasprengjan Glotti frá Sveinatungu var sýndur af Jakobi Svavar Sigurðssyni og hlaut hann 8,62 í aðaleinkunn, fór hann í 8,24 fyrir sköpulag og 8,86 fyrir hæfileika. Þess má geta að þegar Jakob sýndi gæðinginn 6 vetra gamlan hlaut hann 8,63 í aðaleinkunn, 8,11 fyrir sköpulag og 8,97 fyrir hæfileika, og jafnaði þá dóm Dalvars frá Auðsholtshjáleigu sem 6 vetra stóðhestur hafði fengið.
Þá sýndi Þórður Þorgeirsson Sæssoninn Sæfara frá Hákoti og hlaut hann 8,6 í aðaleinkunn, 8,39 fyrir sköpulag og 8,75 fyrir hæfileika.
Fjarki frá Breiðholti var nú sýndur í fyrsta skipti fyrir dóm síðan hann fór utan 2010 og hlaut 8,36 í aðaleinkunn.
Í myndskeiðunum má sjá eftirfarandi hross:
Fylkir vom Kranichtal (ae. 8,33)
Tígull fra Kleiva (ae. 8,39)
Fagur vom ScholBerg (ae. 8,23)
Teigur vom Kronshof (ae. 8,52)
Farsæll von der Elschenau (ae. 8,36)
Pá frá Eyfjörd (ae. 8,65)
Skálm frá Kvistum (ae. 8,03)
Sleipnir fra Noselundgard (ae. 8,22)
Atli frá Norður-Hvammi (8,38)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH