Kynbótasýningar

  • 2. mars 2017
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Sýningaáætlun ársins 2017 og þáttökufjöldi á Fjórðungsmóti Vesturlands

Nú er búið að stilla upp áætlun fyrir kynbótasýningar árið 2017.

Byrjað verður viku seinna en í fyrra og verður því dæmt lengra fram í júní í ár, áætlunin er sem hér segir:

 – 22.05 – 26.05  Hafnarfjörður 
 – 29.05 – 02.06  Melgerðismelar
 – 01.06 – 02.06  Fljótsdalshérað
 – 29.05 – 02.06  Selfoss
 – 06.06 – 09.06  Víðidalur í Reykjavík
 – 06.06 – 16.06  Gaddstaðaflatir
 – 06.06 – 09.06  Borgarfjörður
 – 12.06 – 16.06  Sprettur í Kópavogi
 – 12.06 – 16.06  Hólar í Hjaltadal

– 27.06 – 02.07 Fjórðungsmót Vesturlands 

  – 24.07 – 28.07  Miðsumarssýning Hólar í Hjaltadal
 – 24.07 – 28.07  Miðsumarssýning Gaddstaðaflötum

 – 21.08 – 25.08  Síðsumarssýning Selfossi
 – 21.08 – 25.08  Síðsumarssýning Borgarfjörður
 – 21.08 – 25.08  Síðsumarssýning Dalvík

Fjórðungsmót á Vesturlandi.

Fjórðungsmót verður haldið á Vesturlandi í ár, nánar tiltekið í Borgarnesi. Hross sem eru í eigu aðila á Vesturlandi, Vestfjörðum, Húnavatnssýslum eða Skagafirði eiga þáttökurétt á mótinu og er miðað við að lágmarki 25% eignarhlut. Ákveðin fjöldi efstu hrossa í hverjum flokki eiga þátttökurétt á mótinu og er því ekki um einkunnalágmörk að ræða (sjá fjölda í töflu hér að neðan). Miðað er við að 68 kynbótahross verði á mótinu. Til að auðvelda bestu klárhrossum með tölti að komast inn á mótið verður 10 stigum bætt við aðaleinkunn klárhrossa í sætisröðun hrossa inn á mótið. Þetta er sama leið og var farin fyrir síðasta landsmót hvað klárhrossin varðar. Þegar kynbótasýningar byrja næsta vor verður birtur stöðulisti í WorldFeng sem sýnir hvaða hross eru inni á mótinu hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu. Eins verða eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum beðnir um að láta vita fyrir ákveðna dagsetningu, þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.

Fjöldi kynbótarhrossa á FM 2017:

 4 vetra5 vetra6 vetra7. vetra og eldriSamtalsStóðhestar888630Hryssur81410638

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link