Kynbótasýningar framundan
Sökum breyttra aðstæðna í hestahaldi okkar síðustu vikurnar í kjölfar kvefpestarinnar, var dagsetningum kynbótasýninga breytt. Næstu sýningar eru áformaðar dagana 28. júní – 2. júlí á þremur stöðum á landinu, á Hellu, í Reykjavík og í Skagafirði.
Það er Búnaðarsamband Suðurlands sem tekur við skráningum á sýninguna á Hellu, Búnaðarsamband Vesturlands á sýninguna í Reykjavík og Leiðbeiningamiðstöðin á Sauðárkróki tekur við skráningum á sýninguna í Skagafirðinum.
Hérna fyrir neðan er að finna dagsetningar þeirra sýninga sem eru á sýningaáætlun þeirri sem Guðlaugur V. Antonsson hrossaræktarráðunautur gaf út í byrjun júní.
Júní:
Hella 28. júní – 2. júlí
Reykjavík 28. júní – 2. júlí
Skagafjörður 28. júní – 2. júlí
Júlí:
Eyjafjörður 12. – 16. júlí
Hella 26. – 30. júlí
Skagafjörður 26. – 30. júlí
Ágúst:
Borgarfjörður 3. – 6. ágúst
Hella 9. – 13. ágúst
Hella 16. – 20. ágúst
Blönduós 16. – 20. ágúst
*Athugið að dagskrá þessi er birt með fyrirvara um breytingar vegna þátttöku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH