Kynbótasýningar í Svíþjóð á dagskrá en með breyttu sniði

  • 1. maí 2020
  • Fréttir

Alþjóðlegir kynbótadómarar á sýningu í Axelvalla sumarið 2019 f.v. Jens Füchtenschnieder, Sveinn Ragnarsson og Guðni Ágústsson

Nú styttist í að kynbótasýningar ársins bæði hér heima á Íslandi sem og erlendis hefjist. Í Svíþjóð er fyrsta sýning áætluð þann 22.maí og eru alls 6 sýningar á dagskrá þar í landi, sú síðasta hefst þann 28.ágúst.

Eiðfaxi hafði samband við Heimir Gunnarsson hrossaræktarráðunaut í Svíþjóð og spurði út í stöðuna þar í ljósi Covid-19 veirunnar. Hvernig er staðan í Svíþjóð gagnvart samkomubanni og öðrum reglum? ,,Í Svíþjóð eru afar litlar reglur eða takmarkanir í tengslum við faraldurinn. Það er þó í gildi samkomubann sem takmarkar fjölda fólks við 50 manns sem við verðum að hafa í huga við skipulagningu og framkvæmd kynbótasýninganna.“

Hvernig er áætlað að framkvæma kynbótasýningar með ofangreint í huga. „Við reynum eftir fremsta megni að setja upp reglur fyrir hverja og eina sýningu í Svíþjóð til þess að takmarka fólksfjölda á sýningarstaðnum og nálægð milli þeirra sem eru á staðnum. Einungis starfsfólki sýningarinnar, knöpum og takmörkuðum fjölda aðstoðarmanna með hverjum knapa er hleypt inn á sýningarsvæðið. Til þess að koma til móts við hesteigendur sem ekki geta mætt til að fylgjast með sínum hesti hefur verið ákveðið að allar sýningar ársins verða teknar upp. Þess má einnig geta að hér er starfsemi veðreiðarbrokksins í fullum gangi og höfum við nýtt okkur nokkuð þeirra útfærslur við að móta reglur fyrir sýningar ársins. Þar sem aðstaða er síðan misjöfn milli sýningarstaða má reikna með að reglur um aðgang áhorfenda og fjölda aðstoðarmanna með knöpunum verði eitthvað misjafnar milli sýninga.“ Segir Heimir Gunnarsson.

Hvernig hafa hestamenn í Svíþjóð tekist á við veiruna varðandi mótahald og aðra viðburði?“Flestöll, ef ekki öll mót sem stóð til að halda hafa verið blásin af fram að þessu. Hinsvegar hefur verið mikill áhugi og þáttaka í svokölluðum „online“ mótum. Sænska meistaramótinu hefur verið frestað fram í ágúst, en svo á eftir að koma í ljós hvort það verði gerlegt að halda það yfir höfuð. Það er fátt sem bendir til þess að létt verði á samkomubanni fyrr en að sumri loknu og því ólíklegt að það verði mikið um mótahald hér þetta árið.

Það jákvæða í þessu öllu saman er þó að það virðist vera þónokkur hreyfing á hestasölu. Fólk er almennt meira heima hjá sér og hefur ef til vill meiri tíma núna en áður til að sinna áhugamálinu. Eins er fólk í þéttbýli farið að horfa meira til landsbyggðarinnar og áhugamála sem eru nær náttúrunni og í minni fólksfjölda. Svíar munu ferðast meira innanlands í sumar og eflaust eiga hestaleigur eftir að njóta góðs af því. Hver veit svo nema að það verði til þess að áhugi á íslenskum hestum eigi eftir að aukast í kjölfarið. Því ætla ég að leyfa mér að spá því að áhrif veirunnar verði frekar jákvæð á íslandshestamennskuna heldur en hitt þegar upp verður staðið.“ Eiðfaxi þakkar Heimi fyrir upplýsingarnar og spjallið og óskar honum gleðilegs ræktunarárs.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link