Kynbótasýningar á Íslandi
Næstu vikurnar fara kynbótasýningar hrossa á fullt þegar sýnt er á nokkrum stöðum víðsvegar um landið. Á mánudaginn hefjast sýningar á Gaddstaðaflötum við Hellu, Spretti í Kópavogi, á Hólum í Hjaltadal og á Stekkhólma á Fljótsdalshéraði.
Sýningin á Stekkhólma er þeirra minnst en þar eru skráð til leika 25 hross og verða þau öll dæmd á mánudaginn og svo yfirlitssýning á þriðjudegi. Á Hólum í Hjaltadal eru skráð 94 hross og verður dæmt frá þriðjudegi og yfirlitssýning á föstudegi. Á Gaddstaðaflötum verður dæmt næstu tvær vikurnar og eru samtals skráð þar 224 hross. Það sama er upp á teningnum í Spretti í Kópavogi en þar verður dæmt tvær næstu vikur en þar eru skráð til sýningar 177 hross.
Alls verða því samkvæmt worldfeng 520 hross sýnd í kynbótadómi næstu tvær vikurnar og er því mikið um að vera hjá knöpum, kynbótadómurum og starfsfólki næstu tvær vikur.
Hér má finna röðun hrossa á hverri sýningu fyrir sig með því að smella á sýninguna.
Röðun hrossa á Stekkólma 3. júní
Röðun hrossa á Gaddstaðaflötum 3.-7. júní
Röðun hrossa í Spretti 3.-6. júní
Röðun hrossa á Hólum í Hjaltadal 3.-7. Júní
Röðun hrossa á Gaddstaðaflötum 11.-14. Júní
Röðun hrossa í Spretti 11.-14.júní
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH