Kynbótasýningar, tungubogi og meistarar
Árið 2014 var að sönnu viðburðarríkt ár á sviði hestamennskunnar. Vorið var tími spennu og eftirvæntingar.
- Hestadagar voru haldnir í Reykjavík í fjórða sinn en opnunaratriði hátíðarinnar fór fram í Hörpu.
- Vorið er tími kynbótasýninga en hætta þurfti við nokkrar af fyrstu sýningum ársins. Biðlisti var hins vegar á seinni sýningar ársins enda margir sem reyna nýta sér sem mestan tíma í þjálfun fyrir sýningu.
- Sýningargjöld kynbótahross voru hækkuð vegna rekstrarhalla.
- Reiðhallarsýningar voru haldnar víðsvegar um landið.
- Tunguboginn var bannaður við misgóðar undirtektir.
- Ákveðið var að Heimsleikarnir 2017 myndu fara fram í Oirschot í Hollandi.
- Betrumbættur leiðari íþróttadómara leit dagsins ljós þar sem góð reiðmennska og mýkt er í hávegum höfð.
- HorseExpo var haldið í fyrsta sinn á Íslandi en þá heimsóttu erlendri gestir fræg hross. Þátttakendur hátíðarinnar komast í návígi við þekkt hross og vonarstjörnur.
- Fyrsta alþjóðlega Tölt in Harmony var haldið í Fákaseli en það var Reynir Örn Pálmason sem sigraði það.
- Meistarar voru krýndir en Árni Björn Pálsson sigraði Meistaradeildina fyrir sunnan og Bjarni Jónasson sigraði Meistaradeild Norðurlands
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing