Kynbótasýningarárið í Svíþjóð
Í Svíþjóð voru haldnar fimm kynbótasýningar og ein sýning einungis með sköpulagsdómum. Fullnaðardómar voru 255 talsins en það Svíþjóð er með flestar sýningar á árinu eftir Íslandi. Erlingur Erlingsson sýndi flestar sýningar á árinu eða 38 talsins og á eftir honum er Máni Hilmarsson með 20 sýningar, Eyjólfur Þorsteinsson með 18 sýningar og Vignir Jónasson og Eyvindur Mandal Hreggvidsson með 15 sýningar hvor.
Hrynjandi frá Horni I hlaut hæsta dóm ársins í Svíþjóð, sýndur af Erlingi. Hæmir hlaut 8,37 fyrir sköpulag, 8,58 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,51. Hann hlaut m.a. 9,0 fyrir greitt stökk, samstarfsvilja, bak og lend, fótagerð og prúðleika. Hrynjandi er 9 vetra undan Hrímni frá Ósi og Flautu frá Horni I sem er undan Spuna frá Miðsitju og Frostrós frá Sólheimum. Hrynjandi er því sammæðra Organista frá Horni I. Hrynjandi er ræktaður af Ómari Antonssyni og er í eigu Åsa Eriksson og Kelly Eriksson. Hrynjandi var fluttur út 2019.
Mósart från Smedjan hlaut hæstu einkunn ársins fyrir hæfileika eða 8,63. Mósart var sýndur af Vigni Jónassyni og hlaut fyrir sköpulag 8,09 og í aðaleinkunn 8,44. Mósart er 9 vetra undan Viktori fra Diisa og Minningu från Margaretehof sem er undan Helming från Margaretehof og Iðunni frá Strandarhöfði. Ræktandi Mósarts eru Jesper og Pernilla Eurenius en hann er í eigu UPH Education AB, Linda T.
Gríma från Sundabakka er hæst dæmda hryssa ársins í Svíþjóð, sýnd af Vigni en hann er einnig ræktandi hennar. Gríma er 6 vetra og hlaut í aðaleinkunn 8,30 8,34 fyrir sköpulag og 8,28 fyrir hæfileika. Hún er undan Viking från Österaker og Gráskjónu från Lönneberga sem er undan Gráskjóna från Tåkern og Skerplu från Tåkern. Eigandi Maríu er Sundabakka Islandshästcenter.
Díva från Ådalen hlaut hæsta sköpulagsdóminn en hún hlaut 8,53 fyrir sköpulag, m.a. 9,0 fyrir háls, herðar og bóga, samræmi og hófa. Hún hlaut 7,82 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,07. Hún er 5 vetra og var sýnd af Erlingi. Díva er undan Divar från Lindnäs og Rakel från Hyndevad sem er undan Hrafnfaxa frá Vestra-Geldingaholti og Idunni från Hyndevad. Ræktandi Dívu eru Sigfús Brynjar Sigfússon og Josefine Denami en eigandi er Susanne Larsson.
Tvær 10 voru gefnar í Svíþjóð í ár, báðar fyrir prúðleika, en það voru þeir Ívar frá Hásæti og Farsæll fra Midtlund sem hlutu þær.
10 hæst dæmdu stóðhestar ársins í Svíþjóð
| Fæðingarnúmer | Nafn | Uppruni | Sýnandi | SE | HE | AE |
| IS2012177271 | Hrynjandi | Horni I | Erlingur Erlingsson | 8.37 | 8.58 | 8.51 |
| SE2012104417 | Mósart | Smedjan | Vignir Jónasson | 8.09 | 8.63 | 8.44 |
| IS2013186693 | Frami | Skeiðvöllum | Erlingur Erlingsson | 8.51 | 8.35 | 8.41 |
| NO2011104162 | Farsæll | Midtlund | Erik Andersen | 8.36 | 8.41 | 8.39 |
| DK2014100357 | Barón | Limfjorden | Agnar Snorri Stefánsson | 8.4 | 8.28 | 8.32 |
| SE2011103826 | Seiður | Ekeby | Daníel Ingi Smárason | 8.29 | 8.25 | 8.26 |
| SE2014106126 | Sleipnir | Västeråsen | Daníel Ingi Smárason | 8.44 | 8.02 | 8.17 |
| DK2015100342 | Frami | Ulbæk | Agnar Snorri Stefánsson | 8.14 | 8.15 | 8.15 |
| SE2015170426 | Ess | Sundabakka | Vignir Jónasson | 8.31 | 7.94 | 8.07 |
| SE2016171051 | Jöfur | Lindarbakka | Vignir Jónasson | 7.97 | 8.11 | 8.06 |
10 hæst dæmdu hryssur ársins í Svíþjóð
| Fæðingarnúmer | Nafn | Uppruni | Sýnandi | SE | HE | AE |
| SE2015270425 | Gríma | Sundabakka | Vignir Jónasson | 8.34 | 8.28 | 8.3 |
| SE2009210614 | Valsa | Brösarpsgården | Magnús Skúlason | 8.04 | 8.35 | 8.24 |
| SE2015270082 | Dúfa | Hensgård | Vignir Jónasson | 8.04 | 8.31 | 8.22 |
| SE2015270413 | Svala | Norrkåsa | Vignir Jónasson | 8.19 | 8.1 | 8.13 |
| NO2014217057 | Alfa | Værås | Erlingur Erlingsson | 8.2 | 8.02 | 8.09 |
| NO2014210085 | Hafdís | Oftenes | Eyjólfur Þorsteinsson | 7.95 | 8.15 | 8.08 |
| SE2016271032 | Díva | Ådalen | Erlingur Erlingsson | 8.53 | 7.82 | 8.07 |
| SE2014206769 | Vísa | Brösarpsgården | Magnús Skúlason | 7.99 | 8.09 | 8.06 |
| IS2013287728 | Glás | Dalbæ | Erlingur Erlingsson | 8.45 | 7.84 | 8.05 |
| SE2015270404 | Gleði | Lillängen | Eyjólfur Þorsteinsson | 7.89 | 8.13 | 8.05 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Kristín tekur við formennsku í Sörla