Kynbótasýningu í Þýskalandi aflýst vegna Covid og Herpes

  • 28. apríl 2021
  • Fréttir

Starri frá Herríðarhóli hlaut sinn hæsta dóm á kynbótasýningu í Wurz. Á myndinni er hann í 4.vetra flokki á LM2014

Kynbótsýningu í Wurz í Þýskalandi, sem byrja átti í gær og standa til morgundagsins, var aflýst vegna Herpes veirunnar og Covid-19 en þetta kemur fram á Worldfeng.

Kynbótasýning hefur verið haldin á þessum stað um nokkurra ára skeið og hafa þar komið fram hátt dæmd hross líkt og Bassi frá Efri-Fitjum og Starri frá Herríðarhóli, svo einhverjir séu nefndir.

Hér fyrir neðan má sjá skáskot af tilkynningunni á Worldfeng.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link