Kynbótasýningunni á Dalvík lokið
Þá er kynbótasýningunni á Dalvík lokið. 98 hross voru skráð á sýninguna og öll mættu þau til dóms en af þessum 98 hrossum hlutu 83 fullnaðardóm. Efst á sýningunni varð Planta frá Skrúð en Planta hlaut 8,50 í aðaleinkunn; 8,64 fyrir sköpulag og 8,40 fyrir hæfileika. Sýnandi Plöntu var Þorvar Þorsteinsson. 27 hross hlutu fyrstu verðlaun og komust 14 inná Landsmót.
Efstur í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta var Funi frá Leysingjastöðum (7,85)
Efstur í flokki 6 vetra stóðhesta var Lótus frá Vatnsleysu (8,10)
Efstur í flokki 5 vetra stóðhesta var Lord frá Vatnsleysu (8,25)
Efstur í flokki 4 vetra stóðhesta var Kolskeggur frá Kjarnholtum I (8,18)
Efst í flokki 7 vetra hryssna var Gletting frá Árgerði (8,09)
Efst í flokki 6 vetra hryssna var Planta frá Skrúð (8,50)
Efst í flokki 5 vetra hryssna var Storð frá Hólum (8,27)
Efst í flokki 4 vetra hryssna var Aþena frá Akureyri (8,01)
Meðfylgjandi er dómur Plöntu:
Styttu haustið með EiðfaxaTV