Kynningar á lokaverkefnum í Hestafræðideild
Á vef Háskólans á Hólum kemur fram að dagana 16.-17. apríl hafi verið haldin ráðstefna á vegum hestafræðideildar sem haldin er í tilefni af því að nemendur á þriðja ári í BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu kynntu rannsóknarniðurstöður úr sínum lokaverkefnum. Alls voru það sextán nemar sem kynntu verkefni sín í nýuppgerðum sal, sem áður var gamli íþróttasalurinn í aðalbyggingu háskólans.
Öll lokaverkefnin eru rannsóknarverkefni sem byggja á því að vinna úr aðfengnum gögnum eða eigin söfnun gagna og eru viðfangsefnin fjölbreytt en tengjast öll hestum og/eða knöpum og geta nemendur valið að kynna verkefni sín á annað hvort íslensku eða ensku.
Verkefnin báru eftirfarandi titla:
1. Áhrif klassískrar tónlistar á hvíldarhjartslátt íslenskra hesta á nóttunni.
2. The Influence of Classical Music on the Nocturnal Behaviour in Stabled Icelandic Horses.
3. Short-term effects of training on back dimensions of Icelandic horses.
4. Development of Icelandic horse breeding in Norway from 2010 to 2024.
5. Samband skyldleikaræktunarstuðuls og hæfileikaeinkunnar hjá íslenskum hrossum sem hlutu kynbótadóm á árunum 2020-2025.
6. Vægi, mat og erfðaframfarir á fetgangi í ræktun íslenska hestsins 2000-2025.
7. Áhrif á hjartslátt og hegðun hesta þegar þeir eru fluttir bundnir eða lausir á hestakerru.
8. Áhrif aðgengis að heyi á hegðunarleg og lífeðlisfræðileg viðbrögð hesta við járningu.
9. Kynbótahross á LM2024. Mél, velferð, árangur.
10. The Impact of Contact on Autonomic Nervous System Responses: Heart Rate Changes in Familiar Human-Horse Interactions.
11. Andleg líðan knapa í aðdraganda keppnistímabils.
12. Er munur á skrokkmælingum hrossa sem fá 9-10 fyrir hægt tölt í kynbótadómi og hrossa sem fá lægri einkunn?
13. Áhrif framhæðar í sköpulagi íslenskra hrossa á einkunnir fyrir tölt, brokk og skeið á kynbótasýningum.
14. Tengsl skrokkmála og einkunna fyrir skeið í kynbótadómum.
15. Perceived Needs for Riding Instruction Among Icelandic Horse Riders in the Faroe Islands -A Survey.
16. Eru hrossaræktarbú í fremstu röð á Íslandi að nota fortamningu á unghross? -hversu oft og hvað er gert?
Í fréttinni kemur það fram að umræður hafi skapast um niðurstöður verkefnanna sem og hugmyndir a frekar rannsóknarverkefnum tengdum íslenska hestinum.
Kynningar á lokaverkefnum í Hestafræðideild
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla
Skeifudagurinn haldinn hátíðlegur í gær