Lágmörk á Fjórðungsmót Austurlands
Dagana 2.-5. júlí verður verður fjórðungsmót Austurlands haldið á Stekkhólma. Fagráð í hrossarækt gaf í upphafi árs út lágmörk fyrir kynbótahross inn á kynbótasýningu mótsins og eru þau eftirfarandi:
Flokkur – Aðaleinkunn alhliðahrossa / Aðaleinkunn klárhrossa
- Stóðhestar 7 vetra og eldri 8,25 / 8,15
- Stóðhestar 6 vetra 8,20 / 8,10
- Stóðhestar 5 vetra 8,10 / 8,00
- Stóðhestar 4 vetra 7,95 / 7,85
- Hryssur 7 vetra og eldri 8,15 / 8,05
- Hryssur 6 vetra 8,10 / 8,00
- Hryssur 5 vetra 8,00 / 7,90
- Hryssur 4 vetra 7,85 / 7,75
Rétt til þátttöku í kynbótasýningu mótsins hafa hross sem náð hafa lágmörkum fyrir fjórðungsmót, í kynbótasýningu vorið 2015 og ræktuð eru eða eru í eigu aðila af svæðinu frá Siglufirði til Hornafjarðar, samkvæmt RML. Tilkynna verður um þátttöku í kynbótasýningu mótsins fyrir 20. júní til Þorvaldar Kristjánssonar, ábyrgðarmanns hrossaræktar hjá RML. Verði búið að leysa verkfall dýralækna fyrir fjórðungsmótið verður stóðhestum 5 vetra og eldri, sem ekki komust í kynbótadóm í vor vegna verkfallsins heimilt að koma í dóm á kynbótasýningu fjórðungsmótsins.
Sýningargjöld á kynbótasýningu fjórðungsmótsins verða innheimt samkvæmt gjaldskrá RML, eða 16.700 kr. fyrir reiðdóm hjá þeim hrossum sem koma inn á lágmörkum og 21.700 kr. fyrir fullnaðardóm stóðhesta sem ekki komust í dóm í vor vegna verkfalls.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH