Lágmörk inn á Íslandsmót fullorðna
„Rétt er að árétta það að árangur frá árinu áður gildir inn á Íslandsmót í ár, sem og allur árangur sem náðst hefur í opnum flokkum á löglegum mótum, t.d. T1 og T3 á árunum 2012 og 2013. Þá eru F1 og F2 einnig fullgildir, þ.e. allir fullorðinsflokkar (1.flokkur og 2.flokkur) og meistaraflokkur, sjá reglu 5.2. í lögum og reglum LH.
Keppnisnefnd gaf út lágmörk fyrir Íslandsmótið 2013 þann 6.mars 2013:
- Tölt T1 6,0
- Fjórgangur V1 5,7
- Fimmgangur F1 5,5
- Tölt T2 5,7
- Gæðingaskeið PP1 6,0
- Fimi 5,5
- 250 m skeið 26 sekúndur
- 150 m skeið 17 sekúndur
- 100 m skeið 9 sekúndur“ segir í tilkynningu frá LH