Lagt upp á Landsmót
Framundan er landsmót hestamanna Hellu og einmitt þangað ætlar dágóður hópur hestamanna frá Akureyri að fara.
Í dag lagði af stað ríðandi frá Akureyri á landsmót góður hópur félaga og vina og að ég held eini hópurinn sem ætlar þangað ríðandi. Stefnan er tekin á Kjöl á suðurleiðinni og Sprengisand á heimliðinni.
Voru í hópnum ca. 40 hross 7 manns en það eru rekstrarkóngarnir Tobías Sigurðsson, Kjartan Helgason, Áslaug Kristjánsdóttir, Katrín Birna Barkardóttir, Birna Björnsdóttir, Bogi Hólm og Kristín Ragna. Hólgeir Valdemarsson mun fylgja þeim á fjórum hjólum og stjórnast í þeim.
Í gömlu fréttinni er myndin er tekin norðan Akureyrar í Kræklingahlíð í upphafi ferðar 1978. Og fer fyrir hópnum Haraldur Guðmundsson og að baki hans, Aðalstein Magnússon á Grundarrauð. Knapinn að baki Aðalsteins er Sigurlaug Stefánsdóttir og stundar hún enn útreiðar af kappi. Þetta var mikið mannval líkt og lagði upp í dag.
Óskum við þeim góðs gengis á ferðalaginu og hlakkar okkur til að sjá þau hress og kát á Landsmóti.
Ljósmyndari er Sigfús Helgason og er fréttin fengin á www.eldjarn8.123.is



Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson