Landslið Íslands fyrir HM2011 í Austurríki fullskipað

  • 20. júlí 2011
  • Fréttir
Tuttugu knapar í liðinu

Landslið Íslands í hestaírþóttum fyrir HM2011í Austurríki er fullskipað. Tuttugu knapar eru í liðinu, ellefu fullorðnir í sportinu, þrjú ungmenni, og sex knapar á kynbótahrossum. Flestir knaparnir hafa keppt áður á heimsleikum, einu sinni eða oftar. Nokkrir eru að þreyta frumraun sína.

Follorðnir sem eru að keppa í fyrsta sinn á heimsleikum eru Árni Björn Pálsson, Viðar Ingólfsson, Elvar Einarsson og Sigurður Óli Kristinsson. Ungmennin Arnar Bjarki Sigurðsson og Hekla Katarína Kristinsdóttir hafa áður verið í landsliði Íslands og eiga bæði Norðurlandameistaratitla í fórum sínum. Agnes Hekla Árnadóttir og Helga Una Björnsdóttir eru að reyna við Maríulaxinn.

Liðskipan er þessi:

Fullorðnir:

1 Árni Björn Pálsson á Aris frá Akureyri: Tölt, fimmangur, 250m skeið, 100m skeið, gæðingaskeið
2 Bergþór Eggertsson á Lótusi frá Aldenghoor: 250m skeið, 100m skeið, gæðingaskeið.
3 Elvar Einarsson á Kóngi frá Lækjarbakka: Tölt, fimmgangur, 100m skeið, 250m skeið og gæðingaskeið
4 Eyjólfur Þorsteinsson á Ósk frá Þingnesi: Fjórgangur, slaktaumatölt
5 Haukur Tryggvason á Baltasar frá Freyelhof: Tölt, fimmgangur, gæðingaskeið, 100m skeið
6 Hinrik Bragason á Sigri frá Hólabaki: Tölt og fjórgangur
7 Hulda Gústafsdóttir á Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu: Tölt og fjórgangur
8 Jóhann R. Skúlason á Hnokka frá Fellskoti: Tölt og fjórgangur
9 Rúna Einarsdóttir Zingsheim á Frey frá Nordsternhof: Fimmgangur, slaktaumatölt, 100m skeið og gæðingaskeið
10 Sigurður Rúnar Pálsson á Glettingi frá Steinnesi: Fimmgangur, slaktaumatölt, 100m skeið og gæðingaskeið
11 Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi: Tölt og fjórgangur

Ugmenni:
Agnes Hekla Árnadóttir á Vigni frá Selfossi: Tölt og fjórgangur
Arnar Bjarki Sigurðsson á Röskum frá Sunnuhvoli: Tölt og fjórgangur
Hekla Katarína Kristinsdóttir á Gautreki frá Torfastöðum: Tölt og fjórgangur

Kynbótahross:

Stóðhestar:
Glotti frá Sveinatungu, 7v og eldri. 
Knapi: Jakob Svavar Sigurðsson.

Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu, 6 vetra. 
Knapi: Sigurður Vignir Matthíasson.

Feykir frá Háholti, 5 vetra
. Knapi: Sigurður Óli Kristinsson.

Hryssur:

Gjöf frá Magnússkógum, 7v og eldri
. Knapi: Vignir Jónasson.

Rauðhetta frá Kommu, 6 vetra. 
Knapi: Erlingur Erlingsson.

Smá frá Þúfu, 5 vetra. 
Knapi: Helga Una Björnsdóttir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link