Landslið Sviss
Eins og Eiðfaxi fjallaði um að þá fór Svissneska meistaramótið fram nú um síðastliðna helgi. Í kjölfar þess var landslið Sviss sem fer á HM í Berlín kynnt til sögunnar.
Alls eru knaparnir 15 talsins og þar af eru 6 ungmenni. Heimsmeistararnir í 250 metra skeiði, Markus Albrecht-Schoch og Kóngur frá Lækjamóti, eru skráðir til leiks og hyggjast verja titilinn.
Livio Fruci mætir til leiks með tvo hesta Erró vom Freyelhof og Jóhannes Kjarval frá Hala. Hann er Svissneskur meistara í fjórgangi ungmenna á Erró og stóð framarlega í skeiðkappreiðum á Jóhannesi Kjarval.
Oliver Egli mætir annað hvort með Birki frá Vatni eða Dengsa frá Selfossi.
Hér fyrir neðan má sjá liðsskipan Sviss.
|
Ungmennaflokkur Livio Fruci Erró vom Freyelhof og Jóhannes Kjarval frá Hala Géraldine Greber Andi frá Kálfhóli 2 Lea Hirschi Snotri vom Steinbuckel Laura Valentina Roduner Ólafur vom Lipperthof Lena Studer Pipar vom Saanetal Jasmine Stauffer (Varaknapi) Stirnir fra Grundet Hus Fullorðnir knapar Markus Albrecht-Schoch Kóngur frá Lækjamóti Andrea Balz Baldi frá Feti Flurina Barandun Kvaran frá Útnyrðingsstöðum Oliver Egli Birkir frá Vatni eða Dengsi frá Selfossi Fabienne Greber Hágangur vom Kreiswald Silvia Ochsenreiter-Egli Heljar frá Stóra-Hofi Ladina Sigurbjörnsson-Foppa Styrla fra Skarstad Mara Daniella Staubli Hlébarði frá Ketilsstöðum Urs Strässle (Varaknapi) Ljóri frá Sauðárkróki |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH