Landsliðið mitt
Íslandsmótinu lauk um helgina og var það jafnframt síðasta mótið hér heima áður en landslið Íslands verður tilkynnt. Hópurinn sem keppir á Heimsmeistaramótinu í Oirschot í Hollandi í ágúst verður tilkynntur 14. júlí en Eiðfaxi fór á stúfana og fékk nokkra hestamenn til að segja frá sínu vali ef þeir væru landsliðseinvaldar.
Rétt er að taka fram að þetta er til gamans gert og ekki víst að þeir knapar sem verða nefndir hér á eftir gefi kost á sér eða hvort hrossið þeirra sé falt því eins og flestir vita að þá geta íslensku hestarnir ekki snúið aftur heim en það getur haft mikil áhrif á það hvort knapar gefi kost á sér í liðið eða ekki.

Landsliðseinvaldurinn Hjörvar og Lilja Rún aðstoðarmaður
Hjörvar Ágústsson, tamningamaður og reiðkennari
Ungmenni:
- Jón Ársæll og Frár V1 og T1
- Glódís og Salka fimmgang
- Sigríður Ingibjörg og Ylfa 100/250
- Benedikt og Leiru-Björk pp1
- Herdís Björg og Kvarði tölt
Fullorðnir:
- Elvar Þormarsson / Fjalladís pp1 og 100m
- Jóhanna Margrét og Bárður V1 og T1
- Ingibergur og Sólveig skeiðgreinar
- Hans Þór og Jarl skeiðgreinar
- Jakob Svavar og Nökkvi F1, PP1 og T1
- Þorgeir og Goðasteinn F1, PP1 og T2
- Ásmundur Ernir og Hlökk T2 en þar sem ég held að hún sé ekki í boði þá myndi ég láta Páll Braga og Vísi og Viðar og Þór ríða bráðabana um lausa sætið á Murneyrum, ath. bannað að vera með hlífar og písk og þurfa að vera með tappa í eyrunum svo þeir heyri ekki taktinn.
Svo fæ ég Teit til að fara með Njörð í T2. Gummi Björgvins fer yfir um en endar á að fá Evert frá Slippen lánaðan og Benjamín Sandur kemur öllum að óvart með sinn hest en við gefum ekkert upp um það núna

Þórarinn Ragnarsson, tamningamaður og reiðkennari
Fullorðnir:
- Jóhanna Margrét V1 og T1
- Elvar Þormarsson PP1
- Hans Þór Hilmarsson 100 og 250 m. skeið
- Ingibergur Árnason 100 og 250 m skeið
- Sara Sigurbjörnsdóttir F1
- Jakob Svavar og Nökkvi F1, T1 og PP1
- Viðar Ingólfsson T1
Ungmenni:
- Benedikt og Leira PP1
- Jón Ársæll og Frár V1 og T1
- Glódís og Salka F1
- Arnar Máni og Arion T2
- Sigríður Ingibjörg og Ylfa 100 og 250 m. skeið
Finn það á mér á fleiri en einum stað að þetta verður geggjað HM fyrir Ísland og íslensku knaparnir eigi eftir að koma hlaðnir verðlaunagripum og skrautborðum heim.

Baldvin Ari Guðlaugsson, tamningamaður
Fullorðnir:
- Jóhanna og Bárður
- Teitur og Atlas
- Páll Bragi og Vísir
- Ásmundur og Hlökk
- Daníel og Eining
- Sara og Fluga
- Þorgeir og Goðasteinn
Ungmenni
- Glódís og Salka
- Jón og Frár
- Herdís og Kvarði
- Arnar Máni og Arion
- Egill og Assa
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH