Landsliðið mitt

  • 4. júlí 2023
  • Fréttir
Lesendur Eiðfaxa velja knapa í landslið Íslands

Íslandsmótinu lauk um helgina og var það jafnframt síðasta mótið hér heima áður en landslið Íslands verður tilkynnt. Hópurinn sem keppir á Heimsmeistaramótinu í Oirschot í Hollandi í ágúst verður tilkynntur 14. júlí en Eiðfaxi fór á stúfana og fékk nokkra hestamenn til að segja frá sínu vali ef þeir væru landsliðseinvaldar.

Rétt er að taka fram að þetta er til gamans gert og ekki víst að þeir knapar sem verða nefndir hér á eftir gefi kost á sér eða hvort hrossið þeirra sé falt því eins og flestir vita að þá geta íslensku hestarnir ekki snúið aftur heim en það getur haft mikil áhrif á það hvort knapar gefi kost á sér í liðið eða ekki.

 

Daníel Larsen, tamningamaður og reiðkennari

Þetta er liðið sem ég myndi velja til að fá sem flesta heimsmeistaratitla

Fullorðnir

  • Jóhanna Bárður tölt og fjórgangur
  • Jakob Nökkvi samanlagðar fimmgangsgreinar, fimmgangur f1/ tölt t1 og gæðingaskeið pp1
  • Elvar Fjalladís gæðingaskeið pp1
  • Ingibergur Sólveig skeiðgreinar p2/p1
  • Hans Jarl skeiðgreinar p1/p2
  • Ásmundur Hlökk slaktaumatölt t2
  • Þorgeir Goðasteinn fimmgangur f1

Ungmenni

  • Jón Ársæll Frár fjórgangur v1/ tölt t1
  • Herdís Kvarði tölt t1
  • Glódís Salka fimmgangur f1
  • Sigríður Ylfa skeiðgreinar p1/p2
  • Benedikt Leira-Björk gæðingaskeið pp1/pp2

 

Reynir Örn Pálmason, tamningamaður og reiðkennari

Fullorðnir

  • Jóhanna Margrét og Bárður í tölt og fjórgang
  • Elvar í gæðingaskeið
  • Jakob og Nökkvi í fimmgang, tölt og gæðingaskeið og hann vinnur samanlagðar fimmgangsgreinar.
  • Ásmundur slaktaumatölt
  • Sara fimmgang en hún setur í gírinn núna
  • Hansi í skeiðið en hann er ólíkindatól sem getur helvíti mikið þegar á reynir
  • Ingibergur í skeið

Svo fer Teitur með Njörð í slaktaumatölt, Guðmundur fer í gæðingaskeiðið og kemur verulega á óvart. Vil svo bæta við að ég tel mjög illa staðið að brottvikningu Konráðs Vals og tel að þau mál hefðu mátt og átt að leysa á betri máta. Þar fóru nokkuð öruggar medalíur, svo ekki sé minnst á töltmeistarann Jóa Skúla sem hefði verið gott að hafa í liðinu og gaman að sjá hann.

Ungmenni

  • Jón Ársæll tölt og fjórgang
  • Herdís tölt
  • Glódís fimmgang
  • Sigríður Ingibjörg 100 m og 250 m skeið
  • Benedikt Gæðingaskeið

Þarna erum við með örugg 5 gull

 

Hanne Smidesang, tamningamaður

Ég veit ekki hver er 100% í boði enn held að þetta yrði valið mitt án þess að ég sé búin að leggjast yfir árangur allra í ár. Það þarf lík að skoða hvar hin löndin eru sterk og hvar við eigum mesta möguleika á medalíu.

Fullorðnir:

  • Elvar þormarsson – Fjalladis
  • Jóhanna Margrét – Bárður
  • Jakob Svavar – Nökkvi
  • Þorgeir – Goðasteinn
  • Hans Þór – Jarl
  • Ingibergur -Sólveig
  • Páll Bragi – Vísir

Ungmenni:

  • Glódís – Salka
  • Jón Ársæll – Frár
  • Benedikt – Leira -Björk
  • Herdís – Kvarði
  • Arnar Máni – Arion
  • Finnst samt eiginlega að Sigríður eigi að fara líka. Þetta er erfitt val.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link