Landsliðsstjórar harma ófagleg vinnubrögð hjá hestafréttum
“Hér erum við að kynna landsliðið vegna þess að okkar styrktaraðilar njóta góðs af því. Styrktaraðilarnir eru okkar bakland og því er okkur afar nauðsynlegt að geta haldið kynningu eins og þessa í góðu sambandi við fjölmiðla. Flestir fjölmiðlar hafa virt þessa mikilvægu kynningu, nema einn og sá fjölmiðill grefur undan liðinu með krókaleiðum eingöngu til þess að upphefja sjálfan sig,” sagði Einar Öder Magnússon en landsliðsstjóarnir eru óánægðir með að aðstandandi vefsíðunnar hestafréttir hafi í gærkvöldi birt upplýsingar um landsliðið í óþökk landsliðsstjóra og nefndar.
Á heimasíðu FEIF var í gærkvöldi birt listi yfir alla skráða þáttakendur Heimsmeistaramótsins og voru þar á meðal upplýsingar um nokkra landsliðsmenn Íslands, þó þar hafi leynst rangar upplýsingar um liðið. Landsliðsstjórarnir harma opinberun listans og að birting hans hafi ekki verið látin kyrr liggja til að styggja ekki styrktaraðila landsliðsins.
“Eiðfaxi hefur, fram yfir aðra fjölmiðla, virt og styrkt okkar kynningu, það er og verður okkur afar mikilvægt í Austurríki,” sagði Hafliði ennfremur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH