Landsliðið klárt
Nítján knapar skipa landslið Íslands í hestaíþróttum fyrir HM2009 í Sviss. Þar af eru fjórir heimsmeistarar frá HM2007 sem eiga keppnisrétt sem slíkir. Fimmgangshestar eru áberandi í liðinu og ef vel gengur gætu íslenskir knapar orðið fleiri en einn og fleiri en tveir í úrslitum.
Til marks um það þá voru þau Rúna Einarsdóttir og Haukur Tryggvason í fyrsta og öðru sæti í fimmgangi á þýska meistaramótinu í sumar. Fjórgangurinn er veikari en töltið allgott með fyrrum heimsmeistara Jóhann Skúlason og Hvin í broddi fylkingar. Skeiðhesturinn Lótus frá Aldenghohljóp á 21,46 sekúndum á þýska meistaramótinu. Skeiðhryssan Ester frá Hólum hefur hins vegar ekki verið nógu örugg á keppnistímabilinu. Hörður frá Eskiholti er góður slaktaumatöltari. Sigurður Sigurðarson gæti hæglega blandað sér í toppbaráttuna á honum.
Liðið er þannig skipað:
Íþróttaknapar
Jóhann Skúlason, núverandi heimsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum, keppir á Hvini frá Holtsmúla.
Bergþór Eggertsson, núverandi heimsmeistari í 250m skeiði og fljúgandi skeiði 100m, keppir á Lótusi frá Aldenghoor.
Þórarinn Eymundsson, núverandi heimsmeistari í fimmgangi og samanlögðum fimmgangsgreinum, keppir á Krafti frá Bringu.
Sigursteinn Sumarliðason, núverandi heimsmeistari í gæðingaskeiði, keppir á skeiðhryssunni Ester frá Hólum.
Snorri Dal keppir á Oddi frá Hvolsvelli.
Daníel Jónsson keppir á Tóni frá Ólafsbergi.
Þorvaldur Árni Þorvaldsson keppir á Mola frá Vindási.
Sigurður Sigurðarson keppir á Herði frá Eskiholti.
Erlingur Ingvarsson keppir á Mætti frá Torfunesi.
Haukur Tryggvason keppir á Baltasar from Freyelhof.
Rúna Einarsdóttir-Zingsheim keppir Frey vom Nordsternhof.
Linda Rún Pétursdóttir keppir á Erni frá Arnarsstöðum.
Valdimar Bergstað keppir á Orion frá Lækjarbotnum.
Teitur Árnason keppir á Glað frá Brattholti.
Kynbótaknapar
Tryggvi Björnsson sýnir Grástein frá Brekku í kynbótadómi í flokki 7v og eldri stóðhesta.
Þórður Þorgeirsson sýnir Kjarna frá Auðsholtshjáleigu í kynbótadómi í flokki 6v. stóðhesta.
Guðmundur Björgvinsson sýnir Sæfara frá Hákoti í kynbótadómi í flokki 5v. stóðhesta.
Gunnar Hafdal sýnir Þrumu frá Glæsibæ 2 í kynbótadómi í flokki 7v og eldri hryssna.
Jóhann Skúlason sýnir Gerplu frá Blesastöðum 1a í kynbótadómi í flokki 6v hryssna.
Erlingur Erlingsson sýnir Stakkavík frá Feti í kynbótadómi í flokki 5v hryssna.
Landsliðseinvaldi til að aðstoðar eru þeir Anton Páll Níelsson og Sigurður Vignir Matthíasson. Dýralæknir íslenska landsliðsins er Susanne Braun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH