Landsmót 2012 á DVD

  • 29. október 2012
  • Fréttir
Landsmót 2012 á DVD

Nú styttist í útgáfu dvd diska frá Landsmóti 2012. Diskarnir verða tilbúnir til afhendingar mánaðarmótin nóvember/desember og opnað hefur verið fyrir pantanir á þeim. Í boði verður kynbótapakki (4 diskar, hryssur og stóðhestar) og hápunktapakki (2 diskar með hápunktum mótsins). Um er að ræða sérstaklega vandaða diska þar sem allt efnið er í HD gæðum og hljóðvinnsla með því betra sem sést hefur á landinu en það er gaman að segja frá því að þeir hljóðnemar sem notaðir voru á mótinu eru sömu gerðar og þeir sem notaðir voru á Ólympíuleikunum í sumar. Brakandi flott hljóð og stórkostleg myndgæði – getur varla orðið betra!

 
Verðin á diskunum verða eftirfarandi:
  • Hápunktapakki (2 diskar saman): 6000 krónur
  • Kynbótapakki (4 diskar saman): 9000 krónur
 
Þeir sem panta diska fyrir 10.nóvember fá sérstakan forsöluafslátt eða 1000 krónur af hvorum pakka. Pantanir skulu berast á netfangið [email protected]
 
Einnig er tekið á móti sérpöntunum, s.s. tilteknu hrossi eða holli og kosta þær 10.000 krónur. Sérpantanir sendast á netfangið [email protected]
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link