Landsmót er kynningargluggi
Landsmót hestamanna er stórviðburður og sennilega stærsti íþróttaviðburður landsins en gert er ráð fyrir að um 12-16.000 gestir leggi leið sína í Víðidalinn í Reykjavík dagana 25. maí-1. júlí í sumar til að fylgjast með þegar landsins fremstu gæðingar og kynbótagripir verða teknir til kostanna.
Landsmótin eru gríðarstór kynningargluggi fyrir hestamennskuna og ekki síst alla þjónustuna í kringum atvinnugreinina. Hinir ýmsu aðilar hafa þegar pantað sér pláss á markaðssvæði Landsmótsins í Víðidal í sumar til að kynna sínar vörur og þjónustu og má þar nefna hestavöruverslanir, handverksfólk af ýmsum toga, útgefendur blaða og tímarita, framleiðendur útivistarfatnaðar, kynningaraðilar fyrir hina ýmsu stórviðburði í hestamennskunni og auk þess mun upplýsingastandur mótsins verða staðsettur inni í hinu 1500 m2 markaðstjaldi.
Að sögn Karls Guðlaugssonar sölustjóra Landsmóts er mikil aðsókn í markaðssvæðið og ljóst að nú fer hver að verða síðastur að hreppa sýningarbás í tjaldinu. Áhugasömum er þó bent á að hafa samband við Karl í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 861 2897. Karl tekur einnig við pöntunum á auglýsingum í mótsskrá Landsmóts, sem er nauðsynleg bók fyrir landsmótsgesti sem vilja hafa puttann á púlsinum hvað hestakost, dagskrá og aðrar upplýsingar varðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH