Landsmót í 60 ár ljósmyndasýning –
Landssamband hestamannafélaga hefur í samvinnu við Reykjavíkurborg komið upp glæsilegri ljósmyndasýningu í Hljómskálagarðinum.
Um er að ræða 20 spjöld þar sem stiklað er á því helsta frá upphafi Landsmóts árið 1950 á Þingvöllum til dagsins í dag.
Á ljósmyndunum má sjá mörg kunnugleg andlit hestamanna sem og glæsta gæðinga ásamt hinu fjölbreytilega mannlífi sem einkennir mótin. Texti er bæði á íslensku og ensku.
Höfundar sýningarinnar eru heiðursmennirnir Gísli B. Björnsson og Kári Arnórsson. Sýningin mun standa fram í lok ágúst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH