Landsmótið á DVD
DVD diskurinn frá Landsmóti í Reykjavík 2012 er nú kominn út og fæst í öllum helstu hestavöruverslunum landsins að er fram kemur í tilkynningu frá Landsmóti ehf.
„Annars vegar er það kynbótapakkinn sem hefur að geyma öll kynbótahrossin sem hlutu dóm á mótinu og hins vegar hápunktarnir, þar sem sjá má töltið, skeiðið, gæðingakeppnina, stóðhesta með afkvæmum, ræktunarbúin og fleira.
Einnig er hægt að kaupa diskana á skrifstofu LH, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal virka daga milli 9 og 16 og í síma 514 4030. Verðið á kynbótapakkanum er kr. 8.990 og hápunktarnir eru á kr. 5.990. Þar er einnig hægt að fá dvd frá Landsmótinu í fyrra á góðu verði en hápunktarnir frá 2011 eru á kr. 3.490 og kynbótapakkinn á kr. 6.490.
Í samstarfi við Hrossarækt býður Landsmót pakka með öllum diskum frá LM2012 og bókina Hrossaræktin 2012 á kr. 15.000. Athugið að sá pakki fæst aðeins á skrifstofu LH í Laugardalnum.
Þetta er klárlega jólagjöf hestamannsins í ár!“ segir í tilkynningunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH