Landsmótsblaðið komið út
Sjöunda tölublað Eiðfaxa er komið út.
Um þúsund hross komu fram á Landsmóti hestamanna sem fór fram í byrjun mánaðarins. Slegin voru einkunnamet á kynbótabrautinni og í gæðingakeppninni, Íslandsmet og heimsmet í kappreiðum. Eiðfaxi gerir hátíðinni góð skil í blaðinu.
Í tölublaðinu má nálgast viðtal við Frans Goetschalckx frá Belgíu. Frans vissi ekkert um tilveru íslenska hestakynsins fyrir áratug, en er nú eigandi tveggja stjarna mótsins. Önnur þeirra, Konsert frá Hofi, prýðir forsíðu blaðsins.
Áskrifendur geta lesið blaðið í tölvutækuformi með því að smella hér, en það mun berast inn um lúguna síðar í vikunni.
Hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH