Landsmótsmálin verða í forgrunni
Töluverðar breytingar liggja fyrir í stjórnarskipan LH, en 4 af 7 í aðalstjórn samtakanna munu ekki gefa kost á sér…
til áframhaldandi setu í stjórn. Það eru þau Sigfús Helgason í Létti á Akureyri, Vilhjálmur Skúlason, varaformaður, í Fáki í Reykjavík, Ísleifur Jónasson í Geysi á Rangárvöllum, og Maríanna Gunnarsdóttir, í Fáki.
Eiðfaxi sló á þráðinn og talaði við Harald Þórarinsson formann LH.
Er þetta ekki frekar óvenjulegt að svo margir stjórnarmenn ákveði að draga sig í hlé?
„Jú, það má kannski segja það en mér finnst þetta oft koma í svona kviðum. Engar breytingar eða litlar verða í einhver ár en svo allt í einu eru nokkrir orðnir þreyttir eða að persónulegar ástæður gera þeim erfitt að gegna svona störfum. Það eru hinsvegar engar sérstakar ástæður sem liggja að baki þessum breytingum núna“.
Hefur kjörnefnd fundið til kandidata í stöðurnar?
„Ég veit ekki nákvæmlega stöðuna á því en fæ þó einhverjar fréttir á fundi á morgun. Ég hins vegar veit að þetta fór rólega af stað, ekki mikill áhugi fyrir að starfa en það hefur breyst á endasprettinum hef ég heyrt“.
Eru fleiri breytingar hugsanlega í farveginum?
„Ekkert uppi á borði en á svona þingum getur allt gerst“
Hvernig líst þér á þær tillögur sem liggja fyrir þessu þingi?
„Þær eru náttúrulega misjafnar, sumar ágætar og aðrar síðri en allar eiga þær rétt á umfjöllun og munu allar fá þinglega meðferð“.
Hver verður aðaláhersla þessa þings heldurðu?
„LM málin munu fá mikla umræðu. ekki alls fyrir löngu var skipuð nefnd til að fara yfir þau og mun nefndin funda dagana fyrir þing og halda svo áfram störfum á þinginu. Nefnd þessi er skipuð 3 fulltrúum LH og 2 fulltrúum BÍ. Landsmótsmálin hafa aldrei fengið þann tíma sem þau þurfa á þingum en verður nú meiri áhersla á þau.
Hjörný Snorradóttir vann verkefni í sambandi við nám sitt, um Landsmótin, tilgang þeirra og framkvæmd og fékk hún ágætiseinkunn fyrir verkefnið. Það er ómetanlegt fyrir okkur hestamenn að hafa aðgang að svo góðum gagnabanka til að starfa með.
Það er nauðsynlegt að við náum breiðri samstöðu um þessi mál og góða framtíðarsýn“ sagði Haraldur að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH