Landsþing 2020 fært til Reykjavíkur
Stjórnir Hestamannafélagsins Skagfirðings og Landssambands hestamannafélaga hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að Landsþing LH 2020 verði haldið af LH í Laugardalshöll í Reykjavík 16. til 17. okt. nk. Landsþing LH 2022 verður haldið í Skagafirði.
Þetta er gert til að tryggja hægt verði að aðlaga þingið að þeim sóttvarnarreglum sem verða í gildi í október, hverjar sem þær verða.
Nokkrir möguleikar eru til skoðunar um útfærslu á þinghaldinu í ljósi Covid og það skýrist þegar nær dregur hvaða útfærsla rúmast best innan þeirra ramma sem lög LH og sóttvarnarreglur setja.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH