Landsþing framundan

  • 1. október 2016
  • Fréttir
Tillögur að breytingum við framkvæmd Íslandsmóta.

Það styttist í Landsþing hestamanna en það verður haldið í Stykkishólmi dagana 14.-15. október. Hægt er að sjá flestar upplýsingar um Landsþingið á heimasíðu LH. 

Tillögur stjórnar liggja nú fyrir en 8 tillögur liggja fyrir frá stjórn. M.a. snúa þrjár tillögur að Íslandsmótunum en þar er lagt fram að Íslandsmótin verði skipt upp í Íslandsmót fullorðna og ungmenna annars vegar og barna og unglinga hins vegar. Hin tillagan snýr að því að hafa Íslandsmótin hér eftir World Ranking mót. Hingað til hafa Íslandsmótin oftast verið haldin í sitthvoru lagi en nú leggur stjórn LH fram tillögu um að á Landsmótsári verði Íslandsmótin haldin saman, hálfum mánuði eftir Landsmót. Á Heimsmeistaramótsári verði mótin haldin sitt í hvoru lagi. Íslandsmót fullorðinna og ungmenna skal  haldið aðra helgina í júlí og Íslandsmót barna og unglinga skal haldið þriðju helgina í júlí

 

Hér er hægt að sjá allar tillögur stjórnar LH – Tillögur stjórnar LH

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link