Landsþing hafið

  • 4. nóvember 2022
  • Fréttir
63. landsþing Landssambands hestamannafélaga

63. landsþing Landssambands hestamannafélaga er hafið en þingið hófst kl. 15:00 í dag á þingssetningu og ávörpum heiðursgesta. 177 fulltrúar hestamannafélaganna eiga rétt á að sitja þingið en 159 fulltrúar mættu á þingið.

Gunnar Sturluson, forseti FEIF, fór með ávarp þar sem hann kom inn á að íslendingar þyrftu að vera opnir og virki þátttakendur í alþjóðastarfinu. Gunnar hefur verið formaður FEIF síðan 2014 en hann ætlar að láta af störfum á aðalfundi félagsins í byrjun næsta árs. Einnig kom hann inn á þetta nýja hugtak the social license to ride eða það að fólk muni þurfa ákveðið leyfi til að fá að fara á hestbak. Nefndi hann mikilvægi þess að hestamenn væru vakandi yfir þeirri hreyfingu en þetta sé fyrirferða mikil umræða og hefur FEIF verið að leggja áherslu á að undirbúa málflutning gegn þessu með aðstoða rannsókna en þessi hreyfing gæti gjörbreytt umhverfi hestamennskunnar eins og við þekkjum hana í dag.

Sveinn Steinarsson, formaður deildar hrossabænda innan Bændasamtakana, var einnig með ávarp og kom inn á hversu mikilvægt verkefni Horses of Iceland sé. Hann hrósaði sérstaklega formanni LH, Guðna Halldórssyni, fyrir sína aðkomu í samningarviðræðum við ríkið um áframhaldandi samninga.

Gunnar Halldórsson, formaður LH, byrjaði að minnast látina félaga og fór síðan í að veita gullmerki LH.

Ásmundur Einar Daðason, mennta og barnamálaráðherra, heiðraðir gesti með nærveru sinni og fór með stutt ávarp. Þakkaði hann fyrir boðið og talaði um hversu mikilvæg hestamennska væri fyrir unga fólkið í landinu. Íþróttin sameini kynslóðir og fólk á öllum aldri og nefndi hann að hestamennska hefði sýnt sig sem mjög góða forvörn fyrir ungt fólk. Hann nefndi það að á afmælishátíð Fáks hafi hann lofað tveimur hlutum; þjóðarhöll hestaíþróttarinnar upp í ermina á Degi B. Eggertssyni og að finna leið til að auðvelda börnum og unglingum við að stunda þessa frábæru íþrótt. Hann ætlaði að framkalla helminginn og setja í gang vinnu í að skoða það innan ráðuneytisins hvaða leiðir er hægt að fara og setja upp stýrihóp. Hann myndi síðan mæta á næsta aðalfund LH með reiðhöllina því þá yrði hans flokkur kominn með borgarstjórastólinn. En þessi síðari athugasemd uppskar mikla gleði frá fundargestum.

Í dag og í kvöld verður afhentur æskulýðsbikar LH, farið yfir skýrslu stjórnar, Landsmót 2022 og starf Horse of Iceland. Nefndarstörf eiga að hefjast kl 18:05 og standa fram eftir kvöldi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link