Landsþing mótmælir harðlega orðum Þórs Saari

  • 25. október 2010
  • Fréttir
Landsþing mótmælir harðlega orðum Þórs Saari

Á 57. landsþingi Landssambands hestamannafélaga sem fór fram á Akureyri dagana 22. og 23. október síðastliðin…

voru eftirfarandi ályktanir samþykktar af þinginu.

57. Landsþing LH haldið á Akureyri 22.-23. október 2010 mótmælir harðlega orðum Þórs Saari alþingismanns þar sem fram komu fordómar og vanþekking í garð hestamennskunnar á Íslandi. Hestamennskan er ein elsta og þjóðlegasta íþróttin sem keppnis- og almenningsíþrótt. Hún skapar fjölda fólks atvinnu og verulegar gjaldeyristekjur. Telur þingið að slíkur málflutningur sæmi ekki fulltrúa á löggjafarþingi þjóðarinnar.

57. Landsþing LH haldið á Akureryri 22.-23.október skorar á stjórn Rangárbakka ehf. að draga til baka afturköllun á umsókn um að Landsmót hestamanna verði haldið á Gaddstaðaflötum 2014.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link