Langflest hross dæmd á Íslandi í ár

  • 29. september 2020
  • Fréttir

Hjör frá Völlum var eitt þeirra hrossa sem kom til dóms í ár hér á Landssýningunni knapi: Jakob Svavar Mynd: Louisa Hackl

Nú þegar kynbótaárinu er lokið er gaman að velta fyrir sér ýmsum fróðleik er tengist því.

Alls voru 1933 fullnaðardómar kveðnir upp í ár í  8 mismunandi löndum. Langflestir þeirra voru á Íslandi eða alls 1222. Af þeim löndum þar sem kynbótasýningar voru haldnar voru fæstir fullnaðardómar í Finnlandi alls 9.

Í 288 skipti var eingöngu um sköpulagsdóm að ræða en eins og í fullnaðardómum voru flestir þeirra á Íslandi eða 165 talsins, fæstir þeirra voru í Swiss eingöngu 2.

Hér fyrir neðan má sjá töflur með fjölda dóma annars vegar í fullnaðardómi og hins vegar á sköpulagi.

 

Fullnaðardómar

Land Fjöldi
Ísland 1222
Svíþjóð 289
Þýskaland 206
Danmörk 107
Austurríki 44
Noregur 43
Swiss 13
Finnland 9

 

Sköpulagsdómar

Land Fjöldi
Ísland 165
Svíþjóð 53
Danmörk 32
Þýskaland 17
Finnland 10
Austurríki 6
Noregur 3
Swiss 2

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar