Lárus nýr formaður
Lárus Ástmar Hannesson er nýr formaður Landssambands hestamannafélaga. Hann hlaut 88 atkvæði gegn 62 atkvæðum Stefáns Ármannssonar á framhaldsþingi LH sem fer nú fram í Laugardal. Auðir seðlar voru 4 talsins.
Í þakkarræðu sinni sló Lárus á létta strengi með Stefáni meðframbjóðanda sínum: „Landsmótið verður á Kaldármelum!“ Stefáni bauðst að vera frambjóðandi til stjórnar LH en hann afþakkaði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH