Laufskálarétt verður laugardaginn 28. september
Nú fer að líða að haustinu og margir farnir að huga að stóðréttum.
Listi yfir stóðréttir haustið 2013 hefur nú verið birtur á vef Bændasamtakanna, bondi.is. Ólafur R. Dýrmundsson ráðunautur sá um samantekt listans og Freyr Rögnvaldsson blaðamaður var honum til halds og trausts. Listann og frétt tengda honum má lesa hér.
Í fréttinni á vef Bændasamtakanna er einnig óskað eftir viðbótum og leiðréttingum á listanum, ef um slíkt er að ræða.
Hér fyrir neðan koma helstu stóðréttir haustið 2013 en þeim er raðað niður eftir tímasetningu.
Stóðréttir haustið 2013
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. – Hún.laugardag 7. sept. kl. 9
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag.laugardag 14. sept.
Staðarrétt í Skagafirði.laugardag 14. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag.sunnudag 15. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún.sunnudag 15. sept. kl. 11
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún.Ekki ljóst
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún.Ekki ljóst
Árhólarétt í Unadal, Skag.föstudag 27. sept. kl. 13
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag.laugardag 28. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún.Ekki ljóst
Deildardalsrétt í Skagafirðilaugardagur 5. okt.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf.Ekki ljóst
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag.Ekki ljóst
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún.laugardag 5. okt. kl. 10
Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveitlaugardag 12. okt. kl. 10
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveitlaugardag 12. okt. kl. 13
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún.Ekki ljóst
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH