FEIF Laura og Fannar með yfirburði á stöðulista ársins í gæðingaskeiði

  • 2. nóvember 2026
  • Fréttir

Laura Enderes og Fannar. Ljósmynd: Henk & Patty

Íslenskir knapar áberandi í gæðingaskeiði

Á vefsíðu FEIF hefur stöðulisti ársins (e. annual ranking) í gæðingaskeiði (PP1) verið birtur. Listinn byggir á árangri knapa og hesta á alþjóðlegum mótum (WorldRanking) á árinu, þar sem tvær hæstu einkunnir parsins eru lagðar saman og meðaltal þeirra ræður röðuninni.

Efst á stöðulistanum að þessu sinni er ríkjandi heimsmeistarinn Laura Enderes og Fannar von der Elschenau með glæsilega meðaleinkunn upp á 9,375. Þau sýndu mikla yfirburði á árinu en hæstu einkunnir þeirra voru 9,46 og 9,29. Þau eru jafnframt eina parið á listanum sem rýfur 9,0 múrinn í meðaleinkunn.

Í öðru sæti sitja Bergþór Eggertsson og Fjalladís frá Fornusöndum með meðaleinkunnina 8,835 (9,04 og 8,63).

Hæst þeirra para sem keppa á Íslandi eru Íslandsmeistaranir Árni Björn Pálsson og Elma frá Staðarhofi í þriðja sæti með 8,750 í meðaleinkunn (9,04 og 8,46).

Íslenskir knapar áberandi í efstu sætum

Íslenskir knapar skipa fjögur sæti á topp tíu. Haukur Baldvinsson og Andvari frá Kerhóli sitja í 4. sæti með 8,665 og Elvar Þormarsson og Elektra frá Engjavatni fylgja fast á eftir í 5. sæti með 8,645. Benedikt Ólafsson og Tobías frá Svarfholti ná einnig inn á topp tíu í 10. sæti með 7,960.

Svissneski knapinn Ladina Sigurbjörnsson-Foppa heldur áfram að láta að sér kveða á skeiðlistum ársins og vermir 6. sætið á Þokkadísi frá Eystra-Fróðholti (8,085), en hún er rétt á undan Vicky Eggertsson á Ylfu frá Miðengi (8,065).

Topp 10 á stöðulista ársins í gæðingaskeiði (PP1):

1. Laura Enderes / Fannar von der Elschenau (DE) – 9,375 (9,46 ; 9,29)
2. Bergþór Eggertsson / Fjalladís frá Fornusöndum (DE) – 8,835 (9,04 ; 8,63)
3. Árni Björn Pálsson / Elma frá Staðarhofi (IS) – 8,750 (9,04 ; 8,46)
4. Haukur Baldvinsson / Andvari frá Kerhóli (IS) – 8,665 (8,79 ; 8,54)
5. Elvar Þormarsson / Elektra frá Engjavatni (IS) – 8,645 (8,75 ; 8,54)
6. Ladina Sigurbjörnsson-Foppa / Þokkadís frá Eystra-Fróðholti (CH) – 8,085 (8,13 ; 8,04)
7. Vicky Eggertsson / Ylfa frá Miðengi (DE) – 8,065 (8,42 ; 7,71)
8. Guðmundur Einarsson / Draumur från Tängmark (SE) – 8,000 (8,08 ; 7,92)
9. Sigurður Óli Kristinsson / Lúpína frá Glæsibæ (DK) – 7,980 (8,00 ; 7,96)
10. Benedikt Ólafsson / Tobías frá Svarfholti (IS) – 7,960 (8,17 ; 7,75)

Stöðulistann í heild sinni má nálgast á vef FEIF.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link