Laus störf hjá háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hefur auglýst nokkur spennandi störf á síðu sinni holar.is. Þar á meðal þrjú við hestafræðideildina á Hólum; reiðkennari, lektor og umsjónarmaður hestahalds og hesthúsa.
Reiðkennari:
Auglýst er til umsóknar staða reiðkennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Hestafræðideild háskólans veitir fagmenntun á sviði hestafræða, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og vinnur að þróun og nýsköpun fræðasviðsins í rannsóknarstarfi. Nánar um starfið hér en um er að ræða 100% stöðu og umsóknarfrestur er til 9.september 2021
Umsjónarmaður hestahalds og hesthúsa:
Hestafræðideild Háskólans á Hólum leitar eftir einstaklingi sem hefur þekkingu og reynslu af umhirðu hesta og búrekstri. Reynsla af leiðbeiningu nemenda um hestahald og reiðmennsku er kostur. Sjá nánar um starfið hér en um 100% stöður er að ræða og er umsóknarfrestur til og með 30.september 2021.
Lektor við hestafræðideild:
Laust er til umsóknar starf lektors við hestafræðideild Háskólans á Hólum. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur þekkingu og reynslu á sviði hestafræða eða skyldra greina, s.s. atferlis- eða lífeðlisfræði dýra eða íþróttafræðum. Þekking á kennslufræði er kostur. Mikilvægt að búa yfir reynslu af og miklum áhuga á hestum. Sjá nánar um starfið hér en um 100% stöðu er að ræða og umsóknar frestur er til og með 30.september 2021.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH