Leggur til samræmingarþing hestamanna
Sigbjörn Björnsson, varaformaður Félags hrossabænda, leggur til að endurvakið verði árlegt samræmingarþing hagsmunaaðila í hestamennsku. Hann rifjar upp í viðtali hér í blaðinu að slíkt þing, eða ráðstefna, hafi verið haldið í tvö eða þrjú ár áður en ráðstefnan Ræktun kom til sögunnar. Hann segir að aldrei hafi verið meiri þörf á slíku samræmningarþingi og nú. Sérhæfing eigi sér stað í hestamennskunni eins og alls staðar annars staðar. Lausnin sé ekki endilega fólgin í að setja allar stofnanir undir einn hatt eða eina stjórn. Heldur að þær vinni saman; marki sér starfsvettvang, samræmi sig, virði landamæri en vinni saman
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári