Leitað eftir atriðum á stórsýningu Fáks
Hin árlega stórsýning Fáks fer fram í reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 30. apríl nk. kl. 21.
Á heimasíðu Fáks kemur fram að unnið sé að undirbúningi sýningarinnar og dagskráin sé að mótast. Leitað er að áhugaverðum og skemmtilegum atriðum og geta þeir sem luma á slíku haft samband við sýningarstjórann Magnús Benediktsson í síma 893 3600 og á netfangið [email protected]
Miðaverð á sýninguna verður 2.000 kr, en frítt verður fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH