Leitin að kynbótahrossum
Herdís Reynisdóttir og David Harris frá Ástralíu hófu síðasta vetur ferð sína í að leita að ræktunargrip fyrir Íslandshestabúgarð í Bláu fjöllunum við Sydney í Ástralíu. Hestabúgarðurinn er nýtt gæluverkefni hjá David og konu hans Catherine en þau kynntust íslenska hestinum í hestaferð yfir Kjöl fyrir nokkrum árum. Í 7.tbl. Eiðfaxa er skemmtileg ferðasaga um leitin að kynbótahrossum fyrir hestabúgarð þeirra hjóna.
„Það var jú ekki bara dimmt heldur slík þoka að varla sást handa skil, og þegar bílljósin dönsuðu eins og dularfullir silfurstrengir í þokunni fór þessi sérlega elskulegi stóðhestur að hika aðeins og mér fannst hann spyrja “í alvöru?! viltu tölta í gegnum þetta?” Þegar ég hafði sannfært sjálfa mig um að þrátt fyrir ansi vafasamar aðstæður myndi þessi ljúfi reiðskjóti ekki týna staðfestunni eða gera eitthvað óvænt, bauð ég David að prófa, “Í alvöru?!” spyr hann og horfir á mig hikandi, “heldurðu ég ætti að gera það?” Ég kinka kolli og segi honum að hafi hann einhvern áhuga yfir höfuð á þessum stóðhesti, verði hann að prófa hann, þrátt fyrir niðadimma þoku, myrkur og ekkert skyggni, því á morgun verðum við ekki hér.
Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH