Lena Maxheimer og Abel efst á heimslista ársins í fimmgangi F1
Lena Maxheimer og Abel á HM2025. Ljósmynd: Henk & Patty
Á vefsíðu FEIF hefur stöðulisti ársins (e. annual ranking) í fimmgangi F1 verið birtur. Listinn byggir á árangri knapa og hesta í forkeppni á alþjóðlegum mótum (WorldRanking), þar sem tvær hæstu einkunnir parsins eru lagðar saman og meðaltal þeirra ræður röðuninni.
Efst á stöðulistanum í fimmgangi að þessu sinni er ríkjandi heimsmeistararnir í greininni, Lena Maxheimer og Abel fra Nordal. Þau tróna á toppnum með meðaleinkunnina 7,715 (7,73 og 7,70) eftir afar gott keppnistímabil í Þýskalandi.
Í öðru sæti, og hæst íslenskra para, eru Árni Björn Pálsson og Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 með meðaleinkunnina 7,485 (7,50 og 7,47).
Í þriðja sæti sitja Rasmus Møller Jensen og Harpa frá Höskuldsstöðum með einkunnina 7,370, en þau hlutu nákvæmlega sömu einkunn í báðum sínum hæstu forkeppnum (7,37).
Mikil breidd á alþjóðavettvangi
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Frontur frá Finnastöðum skipa 4. sætið með 7,365 í meðaleinkunn og Nils Christian Larsen á Árvakri frá Auðsholtshjáleigu fylgir í 5. sæti með 7,350. Í 6. sæti sitja Helga Una Björnsdóttir og Hetja frá Hofi II með 7,335, en svissneski knapinn Oliver Egli á Hákoni frá Báreksstöðum er í 7. sæti með 7,315.
- Lena Maxheimer / Abel fra Nordal (DE) – 7,715 (7,73 ; 7,70)
- Árni Björn Pálsson / Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 (IS) – 7,485 (7,50 ; 7,47)
- Rasmus Møller Jensen / Harpa frá Höskuldsstöðum (DK) – 7,370 (7,37 ; 7,37)
- Jóhanna Margrét Snorradóttir / Frontur frá Finnastöðum (IS) – 7,365 (7,40 ; 7,33)
- Nils Christian Larsen / Árvakur frá Auðsholtshjáleigu (NO) – 7,350 (7,40 ; 7,30)
- Helga Una Björnsdóttir / Hetja frá Hofi II (IS) – 7,335 (7,47 ; 7,20)
- Oliver Egli / Hákon frá Báreksstöðum (CH) – 7,315 (7,40 ; 7,23)
- Ásmundur Ernir Snorrason / Askur frá Holtsmúla 1 (IS) – 7,300 (7,33 ; 7,27)
- Lisa Schürger / Byr frá Strandarhjáleigu (DE) – 7,280 (7,43 ; 7,13)
- Elisa Graf / Óskasteinn vom Habichtswald (DE) – 7,265 (7,30 ; 7,23)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands