Lena og Bikar Heimsmeistarar í slaktaumatölti ungmenna
Lena Becker Bikar frá Ytra-Vallholti ljósmynd: Bert Collet
Þá er síðasti dagurinn á Heimsmeistaramótinu hafinn. Það er þung umferðin inn á svæðið og frá hraðbrautinni og inn á svæðið er um 2 klst. Fyrstu úrslitin voru í slaktaumatölti í ungmennaflokki. Lena Becker á Bikari frá Ytra-Vallholti er Heimsmeistari með 7,46 í einkunn. Lena og Bikar kepptu fyrir Þýskaland
Önnur varð Sophia Henke (DE) á Hilmi vom Forstwald og þriðji Eyvar Albrecht (CH) á Randalín frá Efri-Rauðalæk.
A úrslit – Slaktaumatölt – Ungmennaflokkur
1 Lena Becker Bikar frá Ytra-Vallholti 7.46 Þýskaland
Tölt 7.67 : 8.0 – 8.0 – 7.5 – 6.5 – 7.5
Hægt tölt 7.17 : 7.5 – 7.5 – 7.0 – 7.0 – 6.5
Slakur taumur 7.50 : 7.5 – 7.5 – 7.5 – 7.5 – 8.0
2 Sophia Henke Hilmir (Omar) vom Forstwald 7.25 Þýskaland
Tölt 7.50 : 7.5 – 8.0 – 7.5 – 7.5 – 7.5
Hægt tölt 7.17 : 7.5 – 6.5 – 7.5 – 6.5 – 7.5
Slakur taumur 7.17 : 7.5 – 7.0 – 7.0 – 6.5 – 7.5
3 Eyvar Albrecht Randalín frá Efri-Rauðalæk 6.83 Sviss
Tölt 7.00 : 7.0 – 7.0 – 7.0 – 7.0 – 7.0
Hægt tölt 6.33 : 6.5 – 6.0 – 6.5 – 6.5 – 6.0
Slakur taumur 7.00 : 7.0 – 6.5 – 7.0 – 7.0 – 7.0
4 Lowa Walfridsson Seifur från Skälleryd 6.67 Svíþjóð
Tölt 5.67 : 7.5 – 7.5 – 5.0 – 3.5 – 4.5
Hægt tölt 7.00 : 7.0 – 7.0 – 7.0 – 6.5 – 7.0
Slakur taumur 7.00 : 7.0 – 7.0 – 7.0 – 6.5 – 7.0
5 Frøydis Musdalslien Kormákur frá Miðhrauni 6.58 Noregur
Tölt 6.83 : 7.0 – 7.0 – 7.0 – 6.5 – 6.5
Hægt tölt 6.50 : 6.5 – 6.5 – 6.5 – 6.5 – 6.5
Slakur taumur 6.50 : 6.5 – 7.0 – 7.0 – 5.5 – 6.0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH