Léttismenn kusu nýjan formann

  • 29. maí 2020
  • Fréttir

Frá aðalfundi Léttis

Tekið af Facebooksíðu Léttis

Loksins í gærkvöldi tókst að ljúka aðalfundi Hestamannafélagsins Léttis fyrir árið 2019.

Covid 19 faraldurinn hefur sannarlega sett mark sitt á alla starfsemi félagsins og mun hafa áhrif út allt þetta ár.

Rekstur félagsins var góður á árinu 2019 og rekstrarhagnaður var tæpar 5 milljónir króna.

Skuldir eru engar og með þessa góðu rekstrarafkomu ársins getur félagið verið stolt af þessum myndarlega rekstri.

Björn Jóhann Jónsson sem verið hefur formaður félagsins undanfarin 3 ár ákvað að stíga til hliðar og eru hér með honum þökkuð farsæl og góð störfin fyrir félagið í formanntíð sinni, sem og reyndar miklu lengur, enda var Björn tilnefndur heiðursfélagi Léttis fyrir um það bil 12 árum .

Einnig hættu í stjórn Léttis Auður Eiríksdóttir gjaldkeri til tveggja ára sem og Árni Gísli Magnússon sem setið hefur sem varamaður í stjórn Léttis undanfarin 2 ár. Þeim er hér með einnig þökkuð störfin.

Nýr formaður til tveggja ára var kjörinn Dagbjartur Halldórsson og bjóðum við Léttismenn hann velkomin til starfa.

Einnig tók í gærkvöldi sæti í stjórn Léttis Ragnar Sigfússon sem meðstjórnandi og Camilla Hoj tekur sæti Árna Gísla Magnússaonar sem varamaður.

Frekari fréttir af fundinum munum við birta á næstu dögum.

Heimasíða Léttis var viðstödd með myndavélina þegar þeir Björn og Dagbjartur hittust í morgun og nýr formaður tók við formlega með lyklaskiptum og hvar annarstaðar enn í glæsilegri reiðhöll okkar Léttismanna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link