Léttleikandi reiðmennska
Hinrik Bragason mun verða með sýnikennsli að Sörlastöðum á miðvikudagskvöldið 18. apríl.
„Hinrik er einn af okkar fremstu knöpum sem óþarfi er að kynna, en skemmst er að minnast sigur í A-flokki á síðasta landsmóti. Hann mun sýnir hann okkur hvernig hann þjálfar sýna hesta hvort sem um er að ræða reiðhesta eða keppnishesta og aðalþema kvöldsins er hvernig við getum haft þá létta og leikandi eins og hann er frægur fyrir,“ segir í tilkynningu frá fræðslunefnd Sörla.
Staður: Sörlastaðir Hafnarfirði
Dagur: 18 april / miðvikudagur
Tími: 20:00
Aðgangseyrir: 1000 kr
Allir velkomnir
Frítt fyrir 16 ára og yngri
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH