Léttviljugur rýmishestur
Margir athyglisverðir fjögurra vetra stóðhestar komu fram á árinu og verður gaman að fylgjast með þeim. Í ár voru 100 fjögurra vetra hestar sýndir en efstur þeirra var Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk. Þetta er léttviljugur og skrefmikill rýmishestur, undan Fáfni frá Hvolsvelli og Sveiflu frá Lambanesi. Sirkus hlaut hvorki meira né minna en 8,71 sem er hæsta hæfileikaeinkunn hjá fjögurra vetra hrossi á árinu. Á eftir Sirkusi er alhliðahesturinn Valgarð frá Kirkjubæ undan Sjóði og Freistingu frá Kirkjubæ. Valgarð hlaut fyrir hæfileika 8,54 og sköpulag 8,31. Þráinn er þriðji í röðinni en hann hlaut 8,24 fyrir hæfileika og 8,59 fyrir sköpulag en hann er undan Álfi frá Selfossi og Þyrlu frá Ragnheiðarstöðum.
Aðaleinkunn Nafn Faðir Móðir
8.49 Sirkus Garðshorni Þelamörk Fáfnir Hvolsvelli Sveifla Lambanesi
8.45 Valgarð Kirkjubæ Sjóður Kirkjubæ Freisting Kirkjubæ
8.38 Þráinn Flagbjarnarholti Álfur Selfossi Þyrla Ragnheiðarstöðum
8.32 Marel Aralind Lord Vatnsleysu Muska Syðri-Hofdölum
8.31 Sægrímur Bergi Sær Bakkakoti Hrísla Naustum
8.31 Dagfari Álfhólum Blysfari Fremra-Hálsi Dagrún Álfhólum
8.30 Teitur Efri-Þverá Eldjárn Tjaldhólum Þóra Litlu-Sandvík
8.26 Gyrðir Einhamri 2 Eyjólfur Einhamri 2 Gusta Litla-Kambi
8.26 Dofri Sauðárkróki Hvítserkur Sauðárkróki Dimmbrá Sauðárkróki
8.26 Apollo Haukholtum Arion Eystra-Fróðholti Elding Haukholtum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH