Leynist lítill ljósmyndari í þér?
Marta Gunnarsdóttir, umsjónarmaður Vakra-Skjóna hefur gott auga fyrir fallegu myndefni
Vakri-Skjóni er fastur liður í hverju tímariti Eiðfaxa sem er tileinkaður yngri lesendum okkar. Þar kynnumst við skemmtilegum hestakrökkum víðsvegar af á landinu auk þess að þar birtist ýmis fróðleikur sem ætti að nýtast öllu ungu og áhugasömu hestafólki.
Umsjónarmaður Vakra-Skjóna er Marta Gunnarsdóttir sem hefur einstakt lag fyrir skemmtilegu og fróðlegu efni auk þess að vera frábær ljósmyndari.
Í Eiðfaxa Vetur auglýstum við eftir ungum ljósmyndurum á aldrinum 6-17 ára. Markmiðið er að þeir sendi inn ljósmyndir eftir sig og fái þær birtar í Eiðfaxa Vor.
Reglurnar eru þessar
Myndefni: Eitthvað tengt hestum
Aldur ljósmyndara: 6-17 ára
Mynd í góðri upplausn 2M.
Sendu mynd og upplýsingar um ljósmyndar og myndefnið ca. 50-70 orð.
Sendist á [email protected]
Hlökkum til að veja úr myndir eftir ungt og hæfileikaríkt fólk en nú þegar hefur okkur borist þónokkur fjöldi ljósmynda.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands