LH fordæmir slæma meðferð á hrossum

  • 23. nóvember 2021
  • Fréttir
Yfirlýsing frá Landssambandi hestamannafélaga

Yfirlýsingar frá helstu samtökum hestamanna í landinu halda áfram að berast í kjölfar myndbands sem þýsk/austurrísk dýraverndunarsamtök TSB Tierschutzbund Zürichdýraverndundarsamtök birtu um helgina. Landssamband hestamannafélaga sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þar sem sambandið fordæmir slæma meðferð á hrossum og dýraníð af öllu tagi.

Yfirlýsing Landssambands hestamannafélaga

„Landssamband hestamannfélaga fordæmir slæma meðferð á hrossum og dýraníð af öllu tagi.

Meðferð á hrossum eins og sést í myndbandi sem sýnir blóðtöku úr hryssum, ætti hvergi að líðast. Slík meðferð er óverjandi í alla staði og veldur óbætanlegum skaða á ímynd íslenskrar hestamennsku hérlendis sem erlendis. LH skorar á MAST að tryggja að verklag og vinnubrögð við meðhöndlun hrossa við blóðtöku séu ásættanleg.

LH hvetur alla sem koma að meðhöndlun hrossa að hafa virðingu og velferð dýra ávallt í fyrirrúmi.“

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link