LH harmar niðurstöðu áfrýunardómstóls ÍSÍ
Vegna frétta á netmiðlinum Vísi um niðurstöðu áfrýunardómstóls ÍSÍ í máli Þorvaldar Árna Þorvaldssonar varðandi lyfjanotkun notkun hans sendir Landssamband hestamannafélaga frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Landssamband hestamannafélaga harmar niðurstöðu áfrýunardómstóls ÍSÍ og telur hana skaða ímynd íþróttahreyfingarinnar og þar með talið hestaíþróttarinnar í landinu.
Það hefur verið sameiginlegt markmið íþróttahreyfingarinnar í öllum löndum að berjast gegn notkun ólöglegra lyfja í íþróttum. Í ljósi þess er erfitt að skilja þessa ákvörðun dómstólsins fyrr en rökstuðningur liggur fyrir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson