Landsamband hestamanna LH heldur knapafund

  • 31. janúar 2024
  • Fréttir
Keppnisknapar, mótshaldarar, dómarar og aðrir sem að mótahaldinu í hestamennskunni koma eru boðnir velkomnir á knapafund ársins á vegum mótasviðs Landssambands Hestamannafélaga.

Þann 12. febrúar kl. 19:00 verður haldinn fundur í íþróttamiðstöð ÍSÍ á Engjavegi í Laugardal en fundinum verður einnig streymt.

„Farið verður yfir reglur mótahaldsins sem gilda árið 2024, breytingar sem hafa átt sér stað, reglur fyrir Landsmótsúrtökur og ýmislegt spennandi tengt mótahaldinu,“ segir í tilkynningu frá Landssambandi hestamanna en þar kemur fram að á hverju ári berast mótasviði spurningar af ýmsum toga um reglur og annað þeim tengt. „Reynslan sýnir að ítrekað berast spurningar af sama toga út ýmsum áttum og því þykir okkur tilvalið að halda stóran upplýsingafund fyrir alla sem tengjast mótahaldinu þar sem hægt er að fara yfir ýmis atriði áður en keppnistímabilið hefst á þessu mikilvæga og stóra mótaári.“

Hinrik Sigurðsson stendur fyrir fundinum en hann er verkefnastjóri afreks- og mótamála hjá LH. Með honum verður fólk úr keppnisnefnd LH, dómarar og mótshaldarar, honum til halds og trausts.

Fundarsalur ÍSÍ gefur möguleika á takmörkuðu plássi og því þarf að skrá sig á fundinn hér: Skráning á knapafund

Dagskrá fundarins verður auglýstur þegar nær dregur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link